Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Aðgangur bannaður
Your session was expired. Page will be reloaded.
Í vinnslu...
Skráin er tilbúin. Ef niðurhal hefst ekki sjálfkrafa getur þú smellt á hnappinn "Hlaða niður".
Séra Einar Þórðarson (f.1867 - d.1909) prestur í Hofteigi og á Desjarmýri og kona hans Ingunn Loftsdóttir (f.1866 - d.1936) og börn. Á milli foreldranna stendur Loftur (f.1891 - d.1907) börnin fyrir framan f.v. Þóra Einarsdóttir (f.1893 - d.1965), Þórður Einarsson (f.1897 - d.1978), Marta Einarsdóttir (f.1896 - d.1953), Anna Einarsdóttir (f.1899 - d.1904) og Lilja Einarsdóttir (f.1894 - d.1980).
Óvíst hvort börnin eru rétt skráð.
Sigfinnur Júlíus Jónsson (f.1884 - d.1970) frá Bræðraborg í Seyðisfirði og kona hans Jóhanna Gunnlaugsdóttir (f.1873 - d.1943) með börn sín: Sigurlaugur (f.1905 - d.1933) og Georg Svavar (f.1906 - d.1992) standandi, Ástrós Helga (f.1909 - d.1971) í fangi föður síns og Guðrún Aðalheiður (f.1911 - d.1974) í fangi móður sinnar.
Jens Olsen (f.1850) útvegsmaður í Teigagerðisklöpp í Reyðarfirði og Anna Stefánsdóttir (f.1861 - d.1928) eiginkona hans ásamt börnum þeirra: Stefán Jóhann (f.1894 - d.1973), Anna Sigríður (f.1893 - d.1973) og Marta Ólína (f.1891 - d.1969).
Anna Björnsdóttir (f.1854 - d.1925) húsfreyja á Engilæk, Hreimsstöðum og víðar, Björn Pétursson (f.1850) bóndi á Engilæk, Hreimsstöðum í Hjaltastaðaþinghá og víðar, ásamt 5 börn þeirra, í stærðarröð: Hallfríður Björnsdóttir (f.1881 - d.1969), Anna Björnsdóttir (f.1885. - d.1956), Björn Björnsson (f.1887 - d.1973), Þorkell Björnsson (f.1892 - d.1974) og Kristín María Björnsdóttir (f.1895)
Jón Þorsteinsson (f.1871 - d.1954 ), bakari, Elín Ragnheiður Þorsteinsdóttir (f.1879 - d.1968) og synir þeirra Þorsteinn Jónsson (f.1908 - d.1921) og Hlöðver Jónsson (f.1911 - d.1992).
Guðríður Jónsdóttir (f.1877 - d.1948), Björn Þorkelsson (f.1880 - d.1959) og sennilega sonur þeirra. Björn og Guðríður bjuggu í Hnefilsdal 1905 - 1938. Björn var lengi hreppstjóri. Björn var frá Klúku í Hjaltastaðaþinghá, en Guðríður var frá Skeggjastöðum á Jökuldal.
Brynhildur Maack Pétursdóttir (f.1888 - d.1960), Pétur Andreas Maack Pétursson (f.1892 - d.1944) og María Bóthildur Jakobína Maack Pétursdóttir (f.1889 - d.1975) og sitjandi er móðir þeirra Vigdís Einarsdóttir Maack (d.1859 - d.1943).
Elísabet Sigurðardóttir (f.1846 - d.1927) húsfreyja á Hallormsstað og börn hennar Sigrún Pálsdóttir Blöndal
(f.1883 - d.1944) og Guttormur Pálsson (f.1884 - d.1964).
Guðný Ólafsdóttir (f.1855 - d.1937) húsfreyja í Klúku, dóttir þeirra Þorbjörg Stefánsdóttir (f.1892 - d.1968) og Stefán Bjarnason (f.1865 - d.1950) bóndi í Klúku í Hjaltastaðaþinghá.