Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Aðgangur bannaður
Your session was expired. Page will be reloaded.
Í vinnslu...
Skráin er tilbúin. Ef niðurhal hefst ekki sjálfkrafa getur þú smellt á hnappinn "Hlaða niður".
Þorsteinn Vigfússon (f.1858 - d.1950) fæddur í Borgarhöfn í Suðursveit. Vinnumaður víða á Héraði m.a. Brekkugerði í Fljótsdal, Strönd og Vallanesi í Vallahreppmi. Flutti til Ameríku árið 1914.
Sigurveig Friðriksdóttir (f.1891) og Jónína Björg Steindórsdóttir (Friðriksdóttir)(f.1880 - d.1955) frá Finnsstöðum í Eiðaþinghá. Fóru til Vesturheims.
Sigurður Erlendsson (f.1889) frá Skeggjastöðum í Fellum. Vinnumaður í Hrafnsgerði. Sigurður fór til Ameríku en kom aftur og gerðist bóndi í Fljótsdal. Flutti til Reyðarfjarðar og starfaði á skrifstofu KHB. Var giftur Jónu Þorsteinsdóttur, þau voru barnlaus.
Kristján Þorsteinsson (f.1847 - d.1931) og kona hans Margrét Höskuldsdóttir (f.1851 - d.1916) bóndi í Löndum við Stöðvarfjörð.
Börnin fyrir aftan f.v. Arnleif Kristjánsdóttir (f.1882 - d.1969), Þorsteinn Kristjánsson (f.1877 - d.1960) og Erlendur Kristjánsson (f.1878 -d.1962).
Kristrún Valgerður Sigurðardóttir (f.1884 - d.1926) Var fósturbarn á Kóreksstöðum, Hjaltastaðaþinghá 1890. Kom þangað frá Geirastöðum 1888. Vinnukona á Kóreksstöðum, Hjaltastaðaþinghá. Fór til Ameríku.
Pálína Vigfúsdóttir (f.1851 - d.1915) fædd að Ormsstöðum í Eiðaþinghá, húsfreyja og ljósmóðir í Miðhúsum í Eiðaþinghá, síðar á Vestdalseyri á Seyðisfirði og dóttir hennar. Pálína fór til Ameríku.
F.v. Guðrún Ingibjörg Sigfúsdóttir (f.1862 - d.1925) húsfreyja í Gunnhildargerði í Hróarstungu, Málfríður Ragnhildur Sigfúsdóttir (f.1863 - d.1894) húsfreyja á Vífilsstöðum í Hróarstungu og Guðlaug María Sigfúsdóttir (f.1865 - d.1951) húsfreyja Ketilsstöðum Jökulsárhlíð, fór til Ameríku 1893.
Dómhildur Haraldsdóttir Briem (f.1868 - d.1948) frá Rannveigarstöðum í Álftafirði. Kennari í Reykjavík og Sigríður Nikulásdóttir (f.1877 - d.1980). Fór til Vesturheims 1894 frá Eydölum, Breiðdalshreppi.
Eiríkur Jónsson (f.1850 - d.1937), Vilborg Stefánsdóttir (f.1849 - d.1930) og börn.
Standandi f.v. John James Jónsson Johnson (f.1882 - d.1942), Friðrik Hermann Árnason Fljozdal (f.1868 - d.1954) fóstursonur, Bergljót Eiríksdóttir Johnson (f.1877 - d.1968), Edward Larus Johnson (f.1886 - d.1964), Eiríka Eiríksdóttir Johnson (f.1877 - d.1895), Sigurður Niels Jónsson Johnson (f.1879 - d.1939) og Kristín Margrét Johnson (f.1884 - d.1988).
Arnbjörg Stefánsdóttir (f.1853 - d.1937) frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði, húsfreyja á Hánefsstöðum í Seyðisfirði. Fór til Vesturheims 1910 frá Hánefsstöðum.
Guðrún Björnsdóttir (f.1883 - d.1970) Vaði Skriðdal. Dóttir Ingibjargar Bjarnadóttur og Björns Ívarssonar á Vaði. Fór til Vesturheims 1905 frá Eiðum, Eiðahreppi en þar var hún vinnukona.