Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Aðgangur bannaður
Your session was expired. Page will be reloaded.
Í vinnslu...
Skráin er tilbúin. Ef niðurhal hefst ekki sjálfkrafa getur þú smellt á hnappinn "Hlaða niður".
Eðvald Eyjólfsson (f.1870 - d.1941) póstur á Seyðisfirði og móðir hans Aldís Halldórsdóttir (f.1834 - d.1922) ljósmóðir og húsfreyja á Bóndastöðum í Hjaltastaðaþinghá og víðar.
Mæðgurnar, Margrét Jónsdóttir (f.1839 - d.1909) húsfreyja á Seyðisfirði og víðar og Björg Jónsdóttir (f.1865 - d.1939) húsfreyja á Skálanesi í Seyðisfirði.
Jónína Solveig Jónsdóttir (f.1873 - d.1922) og Páll Pálsson (f.1869 - d.1942), bjuggu á Krossi í Fellum 1903 -1942. Páll var frá Fossi á Síðu, bróðir Dagnýjar í Skógargerði og þeirra systkina. Fósturbörn þeirra voru Páll Gíslason bóndi á Aðalbóli og Sólrún Eiríksdóttir húsfreyja á Krossi.
Einar Jóhannsson (f.1905 - d.1983) fæddur í Snjóholti, vélamaður á Seyðisfirði, Guðný Guðfinna Jónsdóttir (f.1879 - d.1938) húsfreyja í Snjóholti og á Seyðisfirði og Árni Jóhannsson (f.1908 - d.1974) fæddur í Snjóholti, bakari Seyðisfirði.
Sigfús Jónsson (f.1856 - d.1941) frá Langhúsum bróðir Kristrúnar á Langhúsum er giftist Benedikt Gunnarssyni bónda á Arnórsstöðum á Jökuldal, bróðursyni séra Sigurðar á Hallormsstað. Sonur Sigfúsar er Jón Sigfússon fyrrum bæjarstjóra á Norðfirði.
Rósa Bergsdóttir (f.1854 - d.1946) fædd í Bjarnanesi, Hornafirði. Dóttir sér Bergs Jónssonar prests í Þingmúla, Vallanesi og víðar. Systir Jóns Bergssonar bónda á Egilsstöðum á Völlum. Giftist ekki. Dvaldi hjá bróður sínum og mágkonu, Margréti Pétursdóttur meiri hluta ævinnar.
Rebekka Larsdóttir (f.1832 - d.1912) húsmóðir í Stöð í Stöðvarfirði, bjó þar 30 ár. Gift Jóni Magnússyni. Móðir Jóns var Guðrún Aradóttir frá Skútustöðum við Mývatn. Faðir Rebekku var danskur, Lars Kristján Christophersen frá Læsø (Hléseyju) Danmörku.
Sigríður Brynjólfsdóttir (f.1888 - d.1954) frá Ási í Fellum. Húsfreyja á Egilsseli. Kona Eiríks Péturssonar í Egilsseli. Dóttir Brynjólfs og þorbjargar á Ási.
Jóhann Eiríkur Magnússon (f.1865 - d.1937) og Gróa Þórarinsdóttir (f.1860 - d.1937) bændur í Bakkagerði Jökulsárhlíð.
Jóhann var ættaður frá Arnkelsgerði á Völlum, en Gróa var frá Dratthalastöðum í Hjaltastaðaþinghá. Fóstursonur þeirra var Jóhann Kristjánsson bóndi í Bakkagerði.
Sigurveig Friðriksdóttir (f.1891) og Jónína Björg Steindórsdóttir (Friðriksdóttir)(f.1880 - d.1955) frá Finnsstöðum í Eiðaþinghá. Fóru til Vesturheims.